Viðskiptaskilmálar |
|
|
|
Viðskiptaskilmálar MartölvunnarVerð sem birt er á vefverslun Martölvunnar er venjulegt staðgreiðsluverð nema annað sé tekið fram (s.s. sértilboð). Vörur og/eða þjónustu skal staðgreiða nema um annað hafi verið samið sérstaklega. Annar greiðslumáti en skv. meðfylgjandi greiðsluseðlum eða upplýsingum telst ófullnægjandi. Athugasemdir vegna útgefinna reikninga skulu berast gjaldkera Martölvunnar ehf. innan 30 daga frá útgáfudegi. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga.
NetkaupUm netkaup á vef Martölvunnar gilda lög um Húsgöngu- og fjarsölusamninga og Lög um rafræn viðskipti. Martölvan starfar í anda siðareglna um netviðskipti frá Samtökum verslunar og þjónustu. SöluveðKaupandi veitir Martölvunni, söluveð í hinu keypta, sbr. lög nr. 75/1997 um samningsveð. Veðrétturinn nær til allra þeirra hluta sem greindir eru í samningi/reikningi þessum. Veðið er til tryggingar kröfu Martölvunnar til alls endurgjalds sem greint er í samningi/reikningi þessum, ásamt vöxtum og kostnaði. Hluti þá er veðsettir eru má kaupandi hvorki selja né veðsetja án skriflegs samþykkis Martölvunnar. Ef vanskil verða á greiðslu þeirra krafna sem veðrétturinn nær til, getur Martölvan leitað fullnustu kröfu sinnar með því að krefjast nauðungarsölu, án undangengins dóms eða aðfarar. VöruskilVöru er einungis hægt að skila í vöruafgreiðslu Martölvunnar og ber kaupandi ábyrgð á að kreditreikningur og/eða móttökukvittun sé í samræmi við vöruskil. Vöru fæst aðeins skilað ef eftirfarandi skilyrðum er fullnægt:
ÁbyrgðSölureikningur telst ábyrgðarskírteini og skal framvísa honum til staðfestingar á ábyrgð. Sé um neytendakaup að ræða gilda reglur kaupalaga um ábyrgðartíma vegna galla. Ef vara er keypt vegna atvinnustarfsemi er ábyrgðartími 12 mánuðir. Ef ábyrgðartími er annar en að framan greinir er þess sérstaklega getið á sölureikningi. Á ábyrgðartíma eru lagfæringar Martölvunnar án endurgjalds á bilunum, sem kunna að verða á búnaði, enda megi rekja þær til framleiðslu- og /eða efnisgalla. ÁbyrgðartakmarkanirÁbyrgð nær ekki til vinnu eða aukakostnaðar, t.d. aksturs og ferðatíma, ef óskað er eftir viðgerð utan auglýsts opnunartíma eða utan verkstæðis Martölvunnar. Ábyrgð nær hvorki til kostnaðar sem hlýst af breytingum annarra en starfsmanna Martölvunnar á vélbúnaði eða uppsetningu stýrikerfis, né til kostnaðar vegna endurheimtingar gagna eða enduruppsetningar notendahugbúnaðar. Endurhlaðanlegar rafhlöður eru rekstrarvara og teljast ekki hluti vélbúnaðar, t.d. fartölva. Ábyrgðartími þeirra er 12 mánuðir, óháð ábyrgðartíma viðkomandi vélbúnaðar, nema annars sé getið í sölureikningi. Kaupandi á engar kröfur á hendur Martölvunni vegna eiginleika hins keypta sem hann varð var við, mátti verða var við eða mátti sjá við notkun, af leiðbeiningum, lýsingum eða öðrum tæknilegum upplýsingum er fylgdu hinu keypta. Martölvan ber í engu tilviki ábyrgð á rekstrartapi kaupanda eða öðru óbeinu tjóni hans, þ.m.t. glötuðum ágóða eða ráðgerðum sparnaði, hvort sem tjónið er rakið til galla, skemmda eða eyðileggingar á hinu keypta eða til annarra ástæðna. Þurfi Martölvan að greiða kaupanda bætur í tengslum við samning þennan getur kaupandi aldrei farið fram á greiðslu bóta sem eru hærri en sem nemur kaupverði hins keypta skv. samningi þessum. Ábyrgð á búnaði fellur niður ef:
Reglur sem gilda um netviðskiptiAthugið að rafrænn fjarsölusamningur er jafngildur skriflegum samningi en kaupandi hefur þó rétt til að falla frá kaupunum, án kostnaðar, í allt að fjórtán daga frá móttöku vörunnar að uppfylltum eftirtöldum skilyrðum:
Martölvan ehf. ábyrgist að veittar persónuupplýsingar verða ekki afhentar öðrum né notaðar í öðrum tilgangi en viðkomandi viðskiptum.
|