Berg áfengis birgða og mælikerfi
Martölvan ehf. flytur inn og þjónustar áfengisskammtara - sjússamæla frá Berg. Eru þessir skammtarar tengjanlegir á kassakerfi sölustaða og geta þannig tryggt að allt áfengi sem keypt er inn seljist að sama skapi og skili tekjum. Notkun áfengismæla kerfana flýtir einnig afgreiðslu umtalsvert. Kerfin mæla allt áfengi sem selt er bæði sterkt og bjór og heldur utan um birgðirnar.
Hvað gera kerfin
Mæla allt áfengi og bjór sem hellt er úr flösku eða tekið af krana og halda þannig utan um notkun og birgðir. Öll kerfi vinna saman og í gegnum sameiginlegt stjórnkerfi sem er um leið öflugt birgðakerfi. Einnig er möguleiki er á að tengja kerfin við afgreiðslu-kassakerfi staðarins þannig að ekki fari neitt áfengi í glas án gjaldfærslu. Þessi kerfi eru frá virtasta framleiðanda á þessu sviði og eru ákaflega traust og gangörugg, einföld í umgengni og þrifum. Það er áratuga reynsla á þeim víða um heim.
Hver er hagurinn af kerfinu
Rýrnun birgða verður minni en 7% en algengt er að hún sé um og yfir 20%, afköst barþjóna aukast um 30 -50% eftir lausnum sem gefur færi á fleiri afgreiðslum og þar afleiðandi meiri tekjum.
Með notkun þessara kerfa er veitingamaðurinn öruggur um að öll áfengis innkaupin skili tekjum, viðskiptavinurinn fær alltaf réttan skammt og verð. Þetta leiðir af sér betri afkomu veitingamanna þar sem innkaupin skila öll tekjum og ekki verður óskýrð rýrnun á dýrum áfengis birgðum.
Stúta kerfi
All-bottle ID, 1544
Fyrst eru það flösku mælarnir All-Bottle en þeir eru stútar sem settir á flöskurnar og innsiglaðir af birgðaverði. Síðan þegar hella á úr er aðeins þörf á að velja skammtastærð, rennaflöskunni í kragann og hvolfa flöskunni yfir glasið og rétt magn er í glasinu á örskots stundu.
Kerfið getur verið tengt sölukassa staðarins sem gerir þá að verkum að tekjur eru færðar í kassan fyrir hvern skammt sem úr flöskunni fer.
Smellið á myndina til að sjá video
|
 |
Byssu kerfið
Laser 1200, 1600, 2400, 3200
Þá er næst byssu kerfið en það er byssa (lík gosbyssu) sem er með 6, 12, 16, 32 tegundum. Er þá skammtað með því að styðja á hnapp á byssunni og hægt að forrita blandaða drykki úr tegundunum sem svarar tvöföldum fjölda tegundanna, og setja í glas með einum hnapp. Hægt er að nota einhverjar tegundir fyrir gos eða annað .
Kerfið getur verið tengt sölukassa staðarins sem gerir þá að verkum að tekjur eru færðar í kassan fyrir hvern skammt sem úr flöskunni fer.
Smellið á myndina til að sjá video
|
 |
Bjór / Vín skammtarinn
Tap-1, Tap-2, Draft-sentinel
Tap kraninn kemur í stað handvirka kranans og skammtar tilgreindann skammt með því einu að styðja á hnappinn. Bjórskömmtun gengur mjög hratt fyrir sig með þessum kerfum eða td. 5 stórir bjórar á 35 sekúndum.
Kerfið getur verið tengt sölukassa staðarins sem gerir þá að verkum að tekjur eru færðar í kassan fyrir hvern skammt sem úr flöskunni fer.
Smellið á myndina til að sjá video
|
 |
Umsagnir notenda:
Fyrri hluti, vefgæði - fullgæði
Seinni hluti vefgæði - fullgæði
|